Mánudagur, 30. mars 2009
Rústabjörgun
Enn eitt helgarnámskeiðið búið hjá nýliðunum! Í þetta skiptið fórum við á Gufuskála og lærðum rústabjörgun, semsagt hjálmur, öryggisgleraugu og stáltá alla helgina. Þetta var mjög skemmtileg helgi með frábæru fólki, bæði nýliðunum sem og leiðbeinendunum. Fyrsta kvöldið í niðamyrkri um miðnætti var skriðið inn um rör niður í jörðina án nokkurra ljósa og þar vorum við eins og ormar og komumst loks út hinum megin 50 mínútum seinna.
Daginn eftir lærðum við að nota vogaraflið til að færa stóra steypuklumpa, fengum fræðslu um allar þær sagir og bora sem rústahópur á, bjuggum til T stífu til að koma í veg fyrir að þök hrynji og margt fleira.
Á sunnudeginn fórum við svo aftur ofan í part af göngunum en með okkur var fata full af vatni sem ekki mátti skvettast neitt vatn úr. Ekki var það nú svo flott að skvettist ekkert vatn, þetta var virklega skemmtileg æfing og reyndi vel á samvinnuna. Líka fórum við annars staðar niður í göngin og þurftum að brjóta okkur leið í miðjum göngum í gegnum timburbretti, sófa og fleira drasl.
Einnig fengum við að skoða hljóðleitartæki sem og myndavél.
Jámm við fengum að leika okkur með fullt af græjum og dóti.
„Hæ, ég heiti Helen og er græjufrík“
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þriðjudagur, 17. mars 2009
hmm...
jámm, ég veit... AAAAALLT of langt síðan ég hef bloggað.
Öh síðan síðast...
ekkert mjög mikið gerst svosem...
-eitt stykki 6 vikna klifurnámskeið búið sem endaði með klifri í Bjarkarheimilinu í 7 metra veggjum. Frekar kúl og ofsalega gaman.
-Flutt í Grafarvoginn.
-Kláraði Fyrstu Hjálp 2 án þess að slasa mig.
hvað segið ÞIÐ gott?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Þriðjudagur, 27. janúar 2009
...viltu sopa?
Í tilefni af því að í gær var þáttur sem hét "the truth about binge drinking" þá opnaði ég auðvitað bjór og tók mynd af honum 
Hér er afraksturinn:
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Þriðjudagur, 20. janúar 2009
Fljúg? núna?
Svona hljómaði sms sem Elín fékk þegar við vorum að ljúka við að þvo bílinn í gær.
Þetta var semsagt boð um að koma að fljúga með Ella vini okkar og flugkennara. Við auðvitað þutum af sta! Mér var skellt í framsætið hjá Ella og hann fer að segja mér til; "ýttu á mastertakkana þarna, þessa rauðu, ýttu þessu inn, tosaðu þetta út" og svo framvegis...
Og viti menn! Áður en ég veit af er ég búin að taka á loft og á leið til Keflavíkur! Þar voru gerðar 2 snertilendingar og svo flogið yfir Bláa Lónið og Grindavík og svo aftur heim.
OH ÞETTA VAR ÆÐI!
Helda að Elli hafi notað orðin "held þú sért ánægðasti flugmaðurinn sem ég flogið með" 
Myndin hér að neðan tók ég þegar ég var hætt að fljúga og Elli tekinn við. 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Laugardagur, 17. janúar 2009
ahhhhh helgi!
Mikið er ég glöð að það er helgi! Ég held að þessi litla tveggja daga vinnuvika hjá mér hafi aldrei tekið eins mikið á. Ég var alveg búin eftir daginn, eftir hóst hóst og meira hóst. En planið er að slappa vel af um helgina og helst að reyna að ná þessu úr sér ! Æ það væri ósköp þægilegt.
Annars er ég mjög ánægð með myndina hér að ofan. Þetta tók ægilega margar tilraunir og á einhverjum 3 tímum er ég búin að taka yfir 150 myndir. En það er nú oft svoleiðis, maður byrjar með ákveðna hugmynd í hausnum og svo breytist hún yfir í eitthvað allt annað þegar upphaflega hugmyndin gengur ekki upp. Oft er það nú einfaldlega þannig, að af 100 myndum er ca 1 nothæf!
Jæja, góða helgi elskurnar! 
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Föstudagur, 16. janúar 2009
jæja þá
Jæja best að sýna smá lífsmark. En bara smá.
Ég var frá vinnu 3 fyrstu daga vikunnar, veik heima með hita og sleen. Það er nú búið að breytast í hósta, hor og meiri hósti.... ekkert spes. Jæja bissí bissí í vinnunni! Back to work... og góða helgi!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 14. janúar 2009
Moi
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Um bloggið
Helen
Tenglar
Ýmislegt
- Björgunarsveitin Ársæll Ársæll
- Nýliðar Ársæls 2008-2009
- Undarlega síðan Undarlegt lið þarna á ferð!
- Flickr síðan mín Myndasíðan mín á Flickr
- Minn geimur í netheimum MySpace!
- Café Sigrún
Fjölskylda
- Rakel Mega sportgella
- Heiðrún Ofurgella
- Sara Vilbergs Sara Vilbergs frænka
- Ylfa Mist Ylfa Mist frænka
Vinir
- Eyrún
- Soffía netvinkona fellow hlaupari og matgæðingur
- Jóhanna sæta stelpan með síða hárið
- Dr. Vala Vala svala
- Angelito mi amigo Angelito
- Dr. Árdís Dr. Dís í Baunalandi
- Berglind og fjölskylda Rocklake, Djúlius Djúliusson og Andrea Wish
- Dr. Árelía Eydís Dr. Eydís fræðikona
- Dr. Kristján Kristján
- Halla Signý Vestfirðingur með meiru
- Harpa Harpa skarpa
- Hulda, Ísar og Vanda Sólrún Familían á Seljaveginum
- Kolbrún Ósk og tvibbarnir Kolbrún og Co
- Ólína Adda Lífið í Baunalandi
- Árelía, Gummi og Íris Júlía GiR-Field og co
- Mitchy Johnny Depp fan nr. 1!
- Marylinn íslensk/bandarísk/filippeysk/írsk?
Hlaupafólk
- Hildur
- Eva og Þórólfur ofurhlauparar
- Sveinbjörg Sveinbjörg
Gríslingarnir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (9.2.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 20
- Frá upphafi: 37840
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 11
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



hlynur
harpao
gunnalauga
bjorgkristjana
hallasigny
sveinka
ylfamist
russi
klarag
hjortur
almaogfreyja
rassgat
hvitiriddarinn
arnarholm




